Konur sem þora

Konur sem þora Notað og nýtt.  Spútnik sem lífstíll.   Litlum verslunum sem selja notuð föt hefur fjölgað í miðbænum. Þetta eru sjarmerandi verslanir

Fréttir

Konur sem þora

Marta B Helgadóttir
Marta B Helgadóttir

Notað og nýtt.  Spútnik sem lífstíll.  

Litlum verslunum sem selja notuð föt hefur fjölgað í miðbænum. Þetta eru sjarmerandi verslanir sem hafa hver sinn sérstaka karakter.

Þessar verslanir eru kreppuvænar, því peningabuddan verður yfirleitt fyrir nokkuð léttvægara hnjaski þegar versluð eru notuð föt en ný.Cool



http://martasmarta.blog.is/users/1d/martasmarta/img/c_documents_and_settings_llbmbh_my_documents_my_pictures_gamlir_flottir_skor.jpg

gamlir&flottir skór

Föt úr vönduðu efni og með góðu handbragði duga lengi og er vel hægt að nota í fjölda ára, nánast að eilífu.

nýtt og gamalt Mér finnst virkilega gaman að sjá á götu vel klæddar ungar konur sem hafa raðað saman gömlum og nýjum fatnaði af vandvirkni og með útsjónarsemi. Skemmtilegir fylgihlutir gera oft útslagið á vel heppnaða samsetningu. Langar Charleston gerviperluhálsfestar eru eitt af því sem sést oft og skrautlegir áberandi skór með MJÖG háum hælum!  Lindsay Lohan hver man ekki eftir indjánavestum með kögri!

Oft hefur virkilega vel tekist til og útkoman verður listrænn og flottur persónulegur stíll.

Ragga Gísla Ég nefni sérstaklega ungar konur í þessu sambandi því karlar eru yfirleitt ekki á þessari línu hvorki ungir né eldri. Við konur sem eldri erum virðumst íhaldssamari eða vanafastari skulum við kalla það. Það er vægast sagt afar sjaldgæft að sjá konu á mínum aldri klædda sundurgerðarlegum fatastíl.

Þær Röggu Gísla og Bryndísi Schram dettur mér í hug að nefna sem dæmi um konur sem hafa löngum þorað að klæðast  öðruvísi og eiga heiður skilinn fyrir það. Flottar, listrænar og smekkvísar sem þær eru og setja sannarlega lit á mannlífið. 



Athugasemdir

05.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst