KS-ingar safna fyrir Sigga Halla
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 10.11.2009 | 16:00 | | Lestrar 747 | Athugasemdir ( )
Hópur Siglfirðinga sem skipaði 3. flokk KS árið 1978 stendur nú fyrir söfnun til styrktar Sigurði Helga Hallvarðssyni, eða Sigga Halla eins og hann er kallaður.
Eins og fram kom í fjölmiðlum í síðustu viku þá glímir Siggi nú við erfiðan sjúkdóm og er í endurhæfingu á Grensás. Hann og kona hans eiga samtals 8 börn, þar af eina fjölfatlaða dóttur. Siggi er einn af markahæstu knattspyrnumönnum á Íslandi fyrr og síðar og lék nánast allan sinn feril með Þrótti Reykjavík. Færri vita að hann er Siglfirðingur, en foreldrar hans eru Hallvarður Óskarsson og Ágústa Lúthersdóttir. Siggi lék með yngri flokkum KS á sumrin þegar hann dvaldi hjá afa sínum Óskari Garibalda og fór m.a. í eftirminnilega ferð með þriðja flokki KS til Danmerkur árið 1978, en þar var meðfylgjandi mynd tekin.

Sigurður Helgi er þriðji frá vinstri í annari röð
Stofnaður hefur verið reikningur hjá Sparisjóði Siglufjarðar í nafni Sigga Halla, nr: 1102-18-641000. kt. 020163-2409, og eru allir Siglfirðingar hvattir til þess að leggja þessu góða málefni lið. Tengiliðir söfnunarinnar eru Sigurjón Erlendsson (sem var þjálfari hópsins 1978), Sigurður Tómas Björgvinsson, Magnús Jónasson og Hermann Einarsson.
Tengd frétt HÉR

Athugasemdir