Kvennahlaupið er á fimmtudaginn kl. 14.00
sksiglo.is | Almennt | 31.05.2011 | 21:00 | Guðmundur Skarphéðinsson | Lestrar 346 | Athugasemdir ( )
Kvennahlaup ÍSÍ er haldið um allt land þann 4. júní nk. en þar sem ferming fer fram á Siglufirði þann dag hentar sú dagsetning illa fyrir hlaupið.
Því hefur verið ákveðið að hlaupið verði á uppstigningardag, þ.e. fimmtudaginn 2. Júní, og hefst hlaupið kl. 14.00.
Sem fyrr er hlaupið frá Torginu. Bolirnir í ár eru fagurbláir og kosta kr. 1.250 líkt og í fyrra. Hressing bíður þátttakenda í lok hlaups.Umf Glói sér um framkvæmd hlaupsins, líkt og síðustu ár, og vonar að kvenfólk staðarins og gestir fjölmenni og hlaupi sér til heilsubótar og hressingar. Náðst hafa ágætis samningar við veðurguðina!
Myndir og texti, Þórarinn Hannesson
Athugasemdir