Kynning á miðjumönnum KS/Leifturs – fyrri hluti
Gabríel Reynisson er einn af þeim leikmönnum sem hefur verið að bæta sig undanfarin ár hann spilaði m.a. 19 leiki síðasta sumar fyrir KS/Leiftur. Gabríel getur spilað margar stöður á vellinum, þó einna helst hægri bakvörður og hægri kantmaður. Ef Gabríel heldur áfram að bæta sig er alveg ljóst að hann mun spila stærra og stærra hlutverk fyrir KS/Leiftur í framtíðinni.
Skemmtileg staðreynd um Gabríel. Hann er með risastórt tattú á bakinu og stefnir að því að fá sér KS/Leiftur tattú á báðar kinnarnar og ennið.
Halldór Logi Hilmarsson, það má segja að Halldór sér gríðarlega fjölhæfur leikmaður hann getur nánast leist allar stöður á vellinum, nema kannski markið. Hann byrjaði að spila aðeins 16 ára gamall fyrir KS/Leiftur og hefur verið að spila stærra og stærra hlutverk síðan þá. Spilaði m.a. 18 leiki síðasta sumar. Halldór er gríðarlega duglegur leikmaður og vinnu samur og mættu margir taka hann sér til fyrirmyndar í þeim efnum.
Skemmtileg staðreynd um Halldór: Halldór Logi sefur að meðaltali 5 tímum meira heldur en meðal hvítur maður á sólahring. Svipað og eins til tveggja ára börn.
Kristófer Hlynsson, Kristó kom til KS/Leifturs frá Þór fyrir þetta tímabil en hann og Ingimar hafa verið í láni þar undanfarin tvö ár. Kristó er gríðarlega efnilegur, enda fáir duglegri við æfingar en hann. Kristó getur spilað sem hægri kantur eða bakvörður einnig í miðri vörninni. Enda er hann líkamlega mjög sterkur eftir að hafa tekið vel á því í ræktinni í vetur.
Skemmtileg staðreynd um Kristó: Kristófer Hlynsson stefnir að því að keppa fyrir Keniu á ólympíulekum í hlaupi
Ingimar Hlynsson, kom eins og bróður sinni frá Þór fyrir þetta tímabil þar sem hann var á láni. Ingimar hefur tekið gríðarlega miklum framförum sérstaklega núna í ár. Hann hefur verið fasta maður í æfingahóp U19 ára landsliðs Íslands og er því alveg ljóst að hann kemur til með að spila stórt hlutverk fyrir KS/Leiftur í sumar og vonandi næstu sumur. Ingimar spilar hvað best þegar hann er á miðjunni, þó að hann geti einnig leist fleiri stöður á vellinum vel.
Skemmtileg staðreynd um Ingimar: Ingimar eyðir meiri tíma berrassaður útí móa heldur en að spila fótbolta.
Alexander Örn Kristjánsson, er að stíga sín fyrstu skref í meistaraflokki nú í ár. Hann hefur ekki ennþá komið við sögu í alvöru leik en það kemur væntanlega til með að gerast fljótlega. Alexander er fæddur 1993 og er því einnig gjaldgengur í 2. flokk eins og margir af okkar yngri leikmönnum. En annar flokkur kemur einnig til með að spila mikið í sumar þar sem teflt er fram sameiginlegu liði með KS/Leiftri, Tindastól og Hvöt.
Skemmtileg staðreynd um Alexander: Hann tekur 95 kg. Bekk mun meira heldur en fóstur pabbi hans Raggi þjálfari.
Dalibor Lazic , Dalibor gekk til liðs við KS/Leiftur í fyrra hann spilaði 16 leiki og í þeim lagði hann upp 10 mörk. Dalibor hefur áður spilað með Stjörnunni, Njarðvík og Hamri. Hann varð fyrir því óláni síðasta sumar að meiðast frekar illa á nára og hefur átt við þau meiðsli að stríða nú á undirbúningstímabilinu. Hann verður að öllum líkindum ekki með í byrjun móts en gæti komið inn sterkur þegar líða tekur á sumarið.
Skemmtileg staðreynd um Dalibor: Dalibor fór í hot yoga með liðinu í æfingaferð fyrir sunnan um daginn, en honum varð bara ekki heitt.
Þorsteinn Þorvaldsson gekk til liðs við KS/Leiftur fyrir tímabilið er hann kom frá Magna Grenivík, Þorsteinn hefur verið fasta maður í liði magna undanfarin ár. Þorsteinn er miðjumaður og er gríðarlega vinnusamur og duglegur leikmaður. Þorsteinn þekkir vel til á Siglufirði og Ólafsfirði en hann á ömmur á báðum þessum stöðum. Steini getur einnig spilað sem kantmaður, hann kemur til með að verða mjög öflugur fyrir KS/Leiftur í sumar.
Skemmtileg staðreynd um Þorstein: Steini er gríðarlega fær í öllu því sem hann tekur sér fyrir hendur sérstaklega hlutum sem snúa að hinu kyninu.



Athugasemdir