Lagfæring. Líklega er þetta Þorleifur Bessason
sksiglo.is | Almennt | 23.10.2013 | 12:30 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 411 | Athugasemdir ( )
Lagfæring. Líklega er þetta Þorleifur Bessason
Á mynd sem birtist hérna hjá okkur á laugardaginn síðasta var
maður rangt nefndur. Við létum fylgja myndinni að maðurinn hafi verið kallaður Jón snikk. Það er víst rangt hjá okkur að
maðurinn á myndinni hafi verið kallaður Jón snikk og líklega er þetta mynd af manni sem hét Þorleifur Bessason.
Ég fékk þessa ábendingu frá Hannesi Pétri Baldvinssyni og
þakka ég honum kærlega fyrir að leiðrétta okkur.
Myndin sem þú birtir þann 19. okt. s.l. og þú segir að sé af
Jóni snikk er alls ekki af honum, heldur einhverjum öðrum alskeggjuðum manni, sem Jón var sjaldnast.
Jón var Jónsson
og var að sögn fæddur hér á Siglufirði og til aðgreiningar frá öðrum Jónum var hann kallaður Jón snikk , af hverju veit
ég ekki. Í Morgunblaðinu þann 3. júlí 1948 birtist mjög falleg kveðjugrein skrifuð af Sigurði Björgólfssyni, kennara.
Greininni fylgdi mynd af Jóni og sést þar greinilega að myndirnar eru af tveimur mönnum gjörólíkum (myndin í Mogganum er sú
rétta.)
Hér er minngingargreinin sem Hannes talar um á Tímarit.is
Hér er minngingargreinin sem Hannes talar um á Tímarit.is
Þið verðið að smella á "smámyndir" og velja blaðsíðu 6.
Athugasemdir