LAMBIÐ SIGGI STORMUR
„Hann kom í heiminn á nákvæmlega sama augnabliki og ég kom í hús og það þótti því tilhlýðilegt að hann yrði skírður Siggi stormur,“ segir veðurfræðingurinn Sigurður Þ. Ragnarsson betur þekktur sem Siggi stormur en hann eignaðist alnafna um helgina þegar hann heimsótti Ólafsfjörð.
„Þetta var nú þannig að ég var fyrir norðan á gráslepputúr og var nýkominn úr honum.“ Siggi var svo beðinn um að vera leynigestur í stórafmæli af vini sínum sem vildi koma afmælisbarninu á óvart. „Þegar ég mætti svo á svæðið var sauðburður í fullum gangi og þrjár ær að bera.“
Þegar myndin er tekin af Sigga og nafna hans var hann því nýkominn í hús og yngri Stormurinn aðeins nokkurra sekúndna gamall. „Hann var varla búinn að átta sig þegar ég fékk hann í fangið,“ segir Siggi meira en lítið stoltur af nafna sínum.
Gráslepputúr Sigga var hans fyrsti um ævina og skemmti hann sér konunglega við veiðarnar. „Sævar Jóhannesson vinur minn bauð mér að koma á grásleppu og ég þurfti ekki að hugsa mig tvisvar um. Þetta var því alveg frábær helgi. Það er ekki á hverjum degi sem maður fer á grásleppu, verður vitni að fæðingu og eignast alnafna. Ég er öllu fólkinu fyrir norðan gríðarlega þakklátur fyrir frábærar móttökur.“
Athugasemdir