Leikfélag Fjallabyggðar

Leikfélag Fjallabyggðar Nú eru æfingar hafnar á fyrsta verki Leikfélags Fjallabyggðar, en Leikfélag Ólafsfjarðar og Leikfélag Siglufjarðar sameinuðust

Fréttir

Leikfélag Fjallabyggðar

Innsent efni.

 

Nú eru æfingar hafnar á fyrsta verki Leikfélags Fjallabyggðar, en Leikfélag Ólafsfjarðar og Leikfélag Siglufjarðar sameinuðust formlega í Leikfélag Fjallabyggðar 12.júlí 2013. 

Áður unnu félögin saman með mikilli prýði að uppsetningu á verkinu ,,Stöngin inn!,, sem var samið og leikstýrt af Guðmundi Ólafssyni, en félögin enduðu á fjölum Þjóðleikhússins með þá sýningu. 

Síðastliðinn mánudag, þann 27. janúar 2014, var kynningarfundur á nýju verki sem L.F. er að fara að  setja á svið. 

Guðmundur Ólafsson er kominn aftur í Fjallabyggðina og mætti á fundinn með sjóðheitt frumsamið handrit sem hann ætlar að leikstýra.  Gummi Fjólu, eins og hann er kallaður hér norðan heiða, greindi lauslega frá verkinu og fór yfir starfið framundan, en mikill fjöldi mætti á þennan fyrsta fund og er augljóslega mikill áhugi og hugur í leiklistarfólki í Fjallabyggð.  

Fyrsti samlestur var síðan á þriðjudaginn 28. janúar 2014 og óhætt er að segja að áhorfendur eigi von  á mikilli skemmtun, því mikið var hlegið á þessum fyrsta samlestri.

Ekki verða fleiri orð höfð um verkið  í bili nema að leikhúsgestum getur farið að hlakka til að skemmta sér í leikhúsinu með L.F. en stefnt er á frumsýningu í byrjun mars.

 

Svo koma nokkrar myndir frá fundinum.

 

leiklist

 

leiklist

 

leiklist

 

leiklist


Athugasemdir

27.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst