Leikið í Eimskipsbikarnum á morgun

Leikið í Eimskipsbikarnum á morgun Handknattleiksdeild KS tekur á móti ÍR í íþróttahúsinu á morgun kl. 18:30. Ljóst er að drengirnir eiga við erfiðan

Fréttir

Leikið í Eimskipsbikarnum á morgun

Mynd frá bikarleik í fyrra.
Mynd frá bikarleik í fyrra.
Handknattleiksdeild KS tekur á móti ÍR í íþróttahúsinu á morgun kl. 18:30. Ljóst er að drengirnir eiga við erfiðan andstæðing að etja og er stuðningur bæjarbúa kærkominn. Sparisjóður Siglufjarðar, Rammi og KS bjóða öllum 16 ára og yngri á leikinn og þrír heppnir krakkar verða dregnir út og fá óvæntan glaðning.
Miðaverð er 1.000 kr. og ekki er tekið við kortum. Þess má geta að Sigmundur Sigmundsson hefur nú jafnað sig af meiðslum og mun koma sterkur inní lið KS sem er skipað gömlum refum og yngri óreyndum drengjum.



Athugasemdir

25.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst