Lesið úr nýrri spennusögu sem gerist á Siglufirði
sksiglo.is | Almennt | 01.08.2010 | 13:25 | Bergþór Morthens | Lestrar 358 | Athugasemdir ( )
Ragnar Jónasson rithöfundur las úr nýrri spennusögu sinni í
Þjóðlagasetrinu á Siglufirði föstudaginn 30. júlí, en sagan
gerist að vetrarlagi á Siglufirði og er líklega fyrsta sakamálasagan þar
sem bærinn er notaður sem sögusvið.
Það var vel mætt í Þjóðlagasetrið þegar Ragnar las úr nýrri spennusögu sinni. Siglufjörður er notaður sem sögusvið bókarinnar, en Ragnar á ættir að rekja til bæjarins og hefur dvalið hér reglulega frá unga aldri.
Hann er því vel kunnugur staðháttum hér á Siglufirði og skilar það sér greinilega í bókina og sá maður staðina ljóslifandi fyrir sér er hann las úr bókinni.
Í stórum dráttum fjallar bókin um ungan lögreglumann sem flyst til Siglufjarðar og lendir fljótlega í rannsókn máls þar sem aldraður maður lætur lífið með voveiflegum hætti að vetri til á Siglufirði.
Þetta er önnur sakamálasaga Ragnars, en sú fyrsta, „Fölsk nóta”, kom út hjá Veröld í fyrra og hlaut góðar viðtökur og var um tíma í efsta sæti metsölulista Eymundsson. Það bíða því margir spenntir eftir útkomu bókarinnar og gaman verður fyrir Siglfirðinga að lesa sakamálasögu þar sem sögusviðið er kunnuglegt.

Athugasemdir