Leyningsá í réttan farveg

Leyningsá í réttan farveg Leyningsá var hleypt í gegn um nýlega gerða brú í Hólsdalnum siðastliðinn þriðjudag.

Fréttir

Leyningsá í réttan farveg

Leyningsá var hleypt í gegn um nýlega gerða brú í Hólsdalnum siðastliðinn þriðjudag.

Kári Hreinsson var á gröfunni og rauf stíflu sem var gerð þegar unnið var að því að koma steypta ræsinu fyrir sem Leyningsá mun renna í gegn um í framtíðinni.

ÓHK Trésmíði sá um smíðavinnu við ræsið í samstarfi við B.Á.S. Vélaleigu og brúin var teiknuð af Þorsteini Jóhannessyni hjá Verkfræðistofu Siglufjarðar.

Lagfæring á farvegi Leyningsár er hluti af þeirri miklu uppbyggingu á nýja golf-vellinum sem er í smíðum og áætlað er að opni 2015 ef allt gengur upp. En þess má geta að Edwin Roald er aðal hönnuður nýja golfvallarins.

Grétar Sveinsson stóð með björgunarhring og fylgdist með þegar Óli Kára tók myndir á Canon myndavélina hans Kára og lagði sig í stórhættu við það að ná góðu myndefni. Ég var hins vegar í öruggri fjarlægð á meðan ég stóð ofan á brúnni og tók myndir af Kára þegar hann rauf stífluna.

Ef aðstæður leyfa verður áfram haldið við að fylla jarðveg að brúnni og móta umhverfi hennar. Í því felst t.d. að hlaða grjóti upp með henni að neðanverðu í takt við þann frágang sem nú má sjá meðfram bökkum Leyningsár og niður í lygnurnar sem nú hafa verið mótaðar í gömlu malarnámunni.

Þetta verður allt hið glæsilegasta og gaman að sjá hvernig Hólsdalurinn tekur glæsilegum breytingum dag frá degi.

Myndir tóku Ólafur Kárason og Hrólfur.

Leyningi

LeyningiGrétar bíður poll rólegur eftir því að stíflan verði mokuð í burtu.

LeyningiOg enn bíður Grétar.

LeyningiKári Hreinsson klár í að grafa í sundur stífluna.

LeyningiÞessa mynd tók Óli Kára. Takið eftir því að þessi mynd virðist alveg óhreyfð.

LeyningiÓli Kára tók þessa mynd líka og hún er nokkuð góð en smá hreyfing í henni. Eins og sést er vatnið byrjað að renna niður úr stíflunni.

LeyningiÞegar Óli tók þessa mynd hefur hann verið orðin örlítið smeikur því hún er þónokkuð meira hreyfð en hinar fyrri. (Annars er Óli alveg fyrirtaks myndasmiður).

LeyningiÓlafur H. Kárason smiður og myndasmiður.

LeyningiHorft niður eftir nýjum farvegi árinnar.

LeyningiKári að skoða árangurinn.

Leyningi

Svo kemur eitt svona örmyndband í restina hér fyrir neðan.

 


Athugasemdir

02.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst