Liđ Siglfirđingafélagsins í Spurningakeppni átthagafélaganna 2013
Spurningakeppni átthagafélaganna 2013
Öflugustu átthagafélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa tekið sig saman og efnt til spurningakeppni.
Alls taka 16 átthagafélög þátt í keppninni:
Árnesingafélagið, Átthagafélag Héraðsmanna, Átthagafélag Sléttuhrepps, Átthagafélag Strandamanna, Barðstrendingafélagið, Breiðfirðingafélagið, Dýrfirðingafélagið, Félag Djúpmanna, Húnvetningafélagið, Norðfirðingafélagið, Siglfirðingafélagið, Skaftfellingafélagið, Stokkseyringafélagið, Súgfirðingafélagið, Vestfirðingafélagið og Önfirðingafélagið.
Sú hugmynd vaknaði að endurvekja spurningakeppni átthagafélaganna sem haldin var í nokkur ár kringum aldamótin síðustu.Þar sem spurningakeppnir eru „í tísku“ núna, samanber Útsvar og öll PubQuiz-in, gæti það verið tilvalinn vettvangur til að vekja athygli á átthagafélögunum og virkja meðlimi þeirra. Ekki síst að fá unga fólkið til að taka þátt. Hugmyndin er því að hafa keppnina létta og skemmtilega, ekki of fræðilega. Keppnin verður haldin í Breiðfirðingabúð, hefst 28. febrúar og lýkur á síðasta vetrardag. Höfundur spurninga er Gauti Eiríksson, grunnskólakennari.
Sjá einnig vef Siglfirðingafélagsins
Athugasemdir