Lífið við höfnina

Lífið við höfnina Það er alltaf líf og fjör við höfnina á Siglufirði. Um helgina fór fram sjóstangaveiðimót og svo koma bátar af öllum stærðum og gerðum

Fréttir

Lífið við höfnina

Það er alltaf líf og fjör við höfnina á Siglufirði. Um helgina fór fram sjóstangaveiðimót og svo koma bátar af öllum stærðum og gerðum með afla að landi. Það eru þó fjölmargar aðferðir við það að veiða fisk eins og fréttamaður fékk að kynnast á göngu sinni um hafnarsvæðið.

Það mátti sjá krakka með veiðistangir og voru þau að vonast eftir þorski en það hafði þó verið lítið að hafa og aflabrögð léleg.

Krakkarnir voru þó ekkert á því að gefast upp og héldu ótrauð áfram.

Þeir voru öllu hressari með aflabrögðin félagarnir á sjókajökunum og hafði annar þeirra þetta að segja um veiðina aðeins utar í firðinum: ,,Þetta er alveg yndislegt og það er hvergi betra að vera".



Krakkarnir voru í miklum veiðihug



Flottur afli





Athugasemdir

18.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst