Lionsklúbbur Siglufjarðar endurreistur

Lionsklúbbur Siglufjarðar endurreistur Síðastliðinn laugardag var fyrsti fundur Lionsklúbbs Siglufjarðar haldinn undir nýjum formerkjum. Klúbburinn

Fréttir

Lionsklúbbur Siglufjarðar endurreistur

Guðný Kristinsdóttir, formaður Lionsklúbbs Siglufjarðar
Guðný Kristinsdóttir, formaður Lionsklúbbs Siglufjarðar

Síðastliðinn laugardag var fyrsti fundur Lionsklúbbs Siglufjarðar haldinn undir nýjum formerkjum. Klúbburinn hefur nú verið endurreistur með nýjum áherslum og er ætlað að höfða til yngra fólks.

 

Guðný Kristinsdóttir, sem er nýkjörinn formaður Lionsklúbbs Siglufjarðar, fékk þann heiður að taka inn 4 nýja félaga í klúbbinn síðastliðinn laugardag en undanfarnar vikur hefur verið unnið að skipulagningu endurreisnar klúbbsins. Aðspurð segist Guðný hafa fengið mikinn meðbyr og jákvæðar undirtektir frá bæjarbúum varðandi endurreisn klúbbsins en alls hafa um 20 manns líst áhuga á að taka þátt í áframhaldandi starfi og verða 3 til viðbótar teknir inn á næsta fundi. Klúbburinn er nú orðinn blandaður og opinn báðum kynjum og hefur skipulag hans því tekið miklum breytingum.


Fyrst og fremst á starfið að vera skemmtilegt segir Guðný. Með yngra fólki þarf klúbburinn að vera fjölskylduvænn og munum við reyna að skipuleggja viðburði þar sem öll fjölskyldan getur tekið þátt. Í dag eru sex hjón þátttakendur í klúbbnum og vonumst við til aukinnar þátttöku maka. Í litlu samfélagi eins og Siglufirði skiptir máli að bæði kynin taki þátt í félagsstörfum og með það að leiðarljósi getum við byggt upp skemmtilega og fjölbreytta starfssemi sem höfðar til allra.


Athugasemdir

20.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst