Lionsmeðlimir á Siglufirði fá viðurkenningu frá alþjóðaforseta
sksiglo.is | Almennt | 28.04.2011 | 09:00 | Finnur Yngvi Kristinsson | Lestrar 558 | Athugasemdir ( )
Lionsklúbbur Siglufjarðar rataði í mikla lægð á undanförnum árum en Jón Dýrfjörð neitaði að trúa því að þessi þriðji elsti Lionsklúbbur landsins og sá fyrsti stofnaður utan Reykjavíkur, lognaðist út af. Á starfsárinu 2009 – 2010 var gert mikið átak í að efla Lkl. Siglufjarðar eftir þá lægð sem klúbburinn hafði ratað í.
Jón Dýrfjörð fékk til liðs við sig nokkra unga aðila sem höfðu áhuga á að hefja klúbbinn aftur til vegs og virðingar og á einu bretti fjölgaði um 63% í klúbbnum en það er fryst og fremst Jóni að þakka að Lkl. Siglufjarðar er enn starfandi.
Allir þessir nýju félagar eru í yngri kantinum eða rétt um þrítugt. Ein í þeirra hópi var Guðný Kristinsdóttir en hún hafði áður verið Leófélagi þar sem hún gegndi mörgum trúnaðarstörfum. Guðný hafði líka verið stofnfélagi í Lkl. Heklu í Garðabæ. Á fundi í Lkl. Siglufjarðar var svo ákveðið að hún yrði fyrsti kvenmaðurinn sem hlyti formennsku klúbbsins.
Þessi endurvakning klúbbsins fór ekki framhjá alþjóðaforseta Lionshreyfingarinnar og af því tilefni ákvað hann að veita þeim Jóni og Guðný sérstaka þakkarviðurkenningu.

Athugasemdir