Litgreining á miðbæ Siglufjarðar

Litgreining á miðbæ Siglufjarðar Mikið hefur verið spurt eftir verkefninu „litgreining miðbæjarins“ sem Rauðka hefur staðið að síðastliðna mánuði en

Fréttir

Litgreining á miðbæ Siglufjarðar

Litgreining á miðbæ Siglufjarðar
Litgreining á miðbæ Siglufjarðar
Mikið hefur verið spurt eftir verkefninu „litgreining miðbæjarins“ sem Rauðka hefur staðið að síðastliðna mánuði en verkefnið var einmitt einn af helstu liðum opins fundar sem SPS ásamt Rauðku og félögum buðu til í Allanum síðastliðinn fimmtudag.

Elín Þorsteinsdóttir og Jón Steinar Ragnarsson hafa unnið hörðum höndum að verkefninu síðastliðnar vikur og mánuði en einnig komu að því Örlygur Kristfinnsson og Bergþór Mortens.


Frá því á fundinum hefur mikið verið spurt um verkefnið og Rauðka jafnvel fengið fyrirspurn um að taka að sér litgreiningu á fleiri húsum. Má því segja að tilgangi verkefnisins hafi verið náð en það var einmitt að skapa umræðu og samstöðu meðal bæjarbúa ásamt því að koma með tillögur af því hvernig fegra megi miðbæinn og gera ásýnd hans enn skemmtilegri. Eins og sést á myndunum þá er ýmislegt hægt að gera með málninguna eina að vopni.


Fleiri myndir af litgreiningunni má sjá HÉR


Athugasemdir

07.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst