Ari Trausti á Ljóðasetrinu.
sksiglo.is | Almennt | 08.08.2011 | 13:30 | Guðmundur Skarphéðinsson | Lestrar 450 | Athugasemdir ( )
Á morgun, þriðjudaginn 9. ágúst, kl. 16.00 mun Ari Trausti Guðmundsson, þúsundþjalasmiður, heimsækja Ljóðasetrið og lesa úr smásögu sem hann hefur samið um Gústa guðsmann, en Gústi setti mikinn svip á mannlífið á Siglufirði á seinni hluta síðustu aldar, eins og fólki er kunnugt.
Einnig mun Ari Trausti lesa nokkur af ljóðum sínum. Það er svo gaman að geta þess að lokum að gestir fyrsta mánuðinn á Ljóðasetri Íslands voru rétt rúmlega 1000 talsins.GJS
Athugasemdir