Ljóðahátíðin Glóð hafin
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 18.09.2009 | 07:00 | | Lestrar 482 | Athugasemdir ( )
Hátíðin hófst í gær með því nemendur Grunnskóla Siglufjarðar fluttu eigin ljóð og annara á hinum ýmsu vinnstöðum og var gerður góður rómur af flutningi krakkanna. Ljóðakaffi var í Þjóðlagasetrinu um kvöldið þar sem sex listamenn fluttu eigin verk og annara, flestir fóru þeir á kostum enda verkin á léttu nótunum og mörg neðan beltis.
Ágæt mæting var og oft var skellt uppúr enda miklir snillingar á ferð. Siglo.is hvetur fólk til að mæta á viðburði ljóðahátíðarinnar og má sjá dagskrána hér að ofan á viðburðarslánni.
Þórarinn Hannesson

Guðrún Árnadóttir

Sigurður Ægisson

Páll Helgason

Sigurður Helgi Sigurðsson

Ingi Steinar Gunnlaugsson

Athugasemdir