Ljóðasetrið fékk nýjustu bækur Bjarts og Veraldar
sksiglo.is | Almennt | 22.12.2011 | 08:20 | Guðmundur Skarphéðinsson | Lestrar 201 | Athugasemdir ( )
Bókaforlögin Bjartur og Veröld hafa gefið Ljóðasetri Íslands allar ljóðabækurnar sem forlögin gáfu út á þessu ári. Við vígslu setursins gáfu þau eldri ljóðabækur sínar.
Þetta eru bækurnar Afviknir staðir eftir Sigmund Erni Rúnarsson, Drauganet eftir Bergsvein Birgisson, Í klóm dalalæðunnar eftir Sindra Freysson, Mávur ekki maður eftir Ásdísi Óladóttur, Skrælingjasýningin eftir Kristínu Svövu Tómasdóttur, Söknuður eftir Matthías Johannessen og Það sem ég hefði átt að segja næsteftir Ingunni Snædal.Ljóðskáld Bjarts og Veraldar eru á mismunandi aldri. Elsti höfundurinn, Matthías, er 81 árs og sá yngsti, Kristín Svava, 25 ára. Þetta er tuttugasta og sjötta ljóðabók Matthíasar en önnur ljóðabók Kristínar Svövu. Tveir höfundar eru um fertugt en þrír á fimmtugsaldri.
Samkvæmt upplýsingum frá forlögunum hefur ljóðabókasalan gengið vel fyrir jólin og sumar bækurnar hafa verið endurprentaðar.
Bjartur og Veröld gefa út fleiri ljóðabækur en önnur forlög þetta árið eða 7 af 39 bókum sem finna má í Bókatíðindum. Næst koma Uppheimar með 6 bækur, Forlagið (Mál og menning og JPV) með 3 bækur og Brú með 3 bækur.
Texti og mynd: Þórarinn Hannesson




Athugasemdir