Ljósmyndasamkeppnin Fugl fyrir milljón
Brimnes hótel í Ólafsfirði hefur efnt til ljósmyndasamkeppninnar Fugl fyrir milljón sem mun standa frá 15. apríl til 31. ágúst næstkomandi.
Gisti og/eða matargestir á Brimnes hóteli ( http://www.brimnes.is/ ), geta skráð sig til þátttöku í ljósmyndasamkeppni um bestu fuglamyndina tekna á Tröllaskaganum, Hrísey eða Grímsey á tilteknu tímabili. Auk ýmissa veglegra verðlauna verður besta myndin verðlaunuð með 1.000.000 króna í reiðufé.
Þeir ljósmyndarar sem komast með myndir sínar í úrslit, fá “Tröllafuglaverðlaunin”, sem ætlunin er að veita á VESTNORDEN ferðakynningunni á Akureyri í September 2010 og þar verður einnig tilkynnt um sigurvegara keppninnar, sem hljóta mun Tröllafuglastyttuna og 1.000.000 króna í reiðufé.
Þeir sem vilja fræðast nánar um keppnina er bent á heimasíðuna http://www.fuglfyrirmilljon.com/ eða http://www.birdforamillion.com/. Einnig má hlusta á viðtal við Axel Pétur Ásgeirsson eiganda Brimnes hótels sem fram fór í Samfélaginu í nærmynd í fyrradag hér.



Athugasemdir