Lýðveldið á planinu

Lýðveldið á planinu Opnun myndlistarsýningar í Galleríi Gránu, Síldarminjasafninu á Siglufirði.

Fréttir

Lýðveldið á planinu

Opnun myndlistarsýningar í Galleríi Gránu, Síldarminjasafninu á Siglufirði.

Sýningin  Lýðveldið á planinu  verður opnuð 29. júlí, kl. 17 í Galleríi Gránu, Síldarminjasafninu á Siglufirði. Boðið verður upp á léttar veitingar í tilefni dagsins.
Sýningin er hluti af eins konar sýningargjörningi hóps átta listamanna. Umfjöllunarefnið er sótt í ólíka kima hins íslenska lýðveldis, menningu, náttúru og ólíkt rými sýningarstaða sem gjarnan tengjast atvinnusögu þjóðarinnar.
Hópurinn hefur gert víðreist og sýnt í óhefðbundnu sýningarhúsnæði svo sem í hlöðu við Mývatn, í yfirgefnum verbúðum í Ingólfsfirði á Ströndum, í húsnæði gömlu ullarverksmiðjunnar að Álafossi og nú síðast í Gamla kaupfélaginu á Þingeyri í maímánuði síðastliðnum.
Upphaf samstarfs listamannanna má rekja til sýningarinnar ,,Lýðveldið Ísland“ sem haldin var í Þrúðvangi, Álafosskvosinni árið 2004 og tileinkuð var 60 ára afmæli íslenska lýðveldisins.

Listamennirnir sem sýna eru:
Anna Jóa, Bryndís Jónsdóttir, Guðbjörg Lind Jónsdóttir, Hildur Margrétardóttir,
Hlíf Ásgrímsdóttir, Kristín Geirsdóttir, Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá, Ólöf Oddgeirsdóttir

Sýningin stendur frá 29. júlí til 31. ágúst 2010 milli kl. 14 og 18. Opið alla daga kl. 10-18 og kl. 13-17 frá 21. ágúst.


Athugasemdir

18.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst