Lyfjaverksmiðja og hótel

Lyfjaverksmiðja og hótel Róbert Guðfinnsson, fyrrverandi forstjóri og stjórnarformaður Þormóðs ramma á Siglufirði, og viðskiptafélagi hans, Vilhelm

Fréttir

Lyfjaverksmiðja og hótel

Róbert að kynna áform sýn
Róbert að kynna áform sýn

Róbert Guðfinnsson, fyrrverandi forstjóri og stjórnarformaður Þormóðs ramma á Siglufirði, og viðskiptafélagi hans, Vilhelm Már Guðmundsson, eru aðaleigendur íslenska lyfjaþróunarfélagsins Geníss, en þeir eiga 79% í félaginu og Nýsköpunarsjóður á 21%.

Félagið er langt komið með lyfjaþróun og prófanir á tvenns konar lyfjum, bólgueyðandi og til beinfyllingar, og stefnir að því að reisa lyfjaverksmiðju á Siglufirði og að fyrstu lyfin fari á markað seinni hluta næsta árs.

Þetta kemur fram í ítarlegu viðtali Viðskiptablaðs Morgunblaðsins við Róbert í dag.

Milli 40 og 50 manns muni fá vinnu í lyfjaverksmiðjunni þegar hafin verður starfsemi og ef vel gangi verði stefnt að stækkun.

Texti: MBL.is
Mynd: GJS


Athugasemdir

17.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst