Mamma Metrostaff

Mamma Metrostaff Sigríður Hallgrímsdóttir hefur löngum verið kölluð mamma Metrostaff en hún hefur dvalið hér á Siglufirði í rúm 3 ár í tengslum við

Fréttir

Mamma Metrostaff

Sigríður Hallgrímsdóttir. Mamma Metrostaff.
Sigríður Hallgrímsdóttir. Mamma Metrostaff.
Sigríður Hallgrímsdóttir hefur löngum verið kölluð mamma Metrostaff en hún hefur dvalið hér á Siglufirði í rúm 3 ár í tengslum við Héðinsfjarðargöngin. Bústýra er hún á gamla Hótel Læk og hefur séð um að vinnumenn hjá Háfelli og Metrostaff hafi nóg að bíta og brenna og allt sé í góðu lagi varðandi aðbúnað.
 Henni til aðstoðar nú eru þau Vilem Cahel og Rebekka Viggós en Villi hefur starfað lengi við göngin og reyndar getur hann gert allt mögulegt segir Sigríður brosmild og leggur augun aftur dreymin. Þegar flest var í fæði hjá þeim voru um 47 manns í fullu fæði og mjög líflegt. Von er á 10 manns frá Metrostaff um miðjan október en nú þegar eru 4 fyrir, ekki er búið að ákveða hvort þeir verði á Siglufirði eða Ólafsfirði.

Villi getur allt segir Sigga.



Rebekka er mjög dugleg segir Sigga.



Villi og Sigga eru samhent par.




Athugasemdir

25.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst