Mánaberg ÓF-42 landar í Þorlákshöfn
sksiglo.is | Almennt | 07.07.2011 | 12:00 | Guðmundur Skarphéðinsson | Lestrar 151 | Athugasemdir ( )
Þriðjudaginn 5. júlí kom Mánaberg ÓF 42 til hafnar í Þorlákshöfn með góðan
úthafskarfaafla af Reykjaneshrygg og er honum landað þar. Í skipinu
eru 257 tonn af afurðum, sem svarar til 436 tonna afla upp úr sjó.
Mánaberg millilandaði í Reykjavík 20. júní s.l. svipuðu magni og hélt þaðan á úthafskarfamiðin og kláraði veiðiferðina sem fyrr segir s.l. nótt. Heildaraflinn í þessum tvískipta úthafskarfatúr er því um 870 tonn upp úr sjó að verðmæti kr. 300 milljónir.

Úthafskarfaveiðar
hafa gengið vel á vertíðinni
og varð heildarafli Mánabergs 1.311 tonn. Þegar hafnarfríi áhafnarinnar
lýkur er næsta verkefni að reyna við makrílinn í fyrsta sinn. Ágæt
makrílveiði hefur verið úti fyrir öllu Suðurlandi að undanförnu.
Aflinn settur í frystigám.
Heimasíða Ramma h/f
Athugasemdir