Menningarhúsið Tjarnarborg

Menningarhúsið Tjarnarborg Aðventuhátíð í Fjallabyggð. Jólamarkaður, jólagleði, jólasöngvar og jólaskapið verður allsráðandi 1. desember 2013 í og við

Fréttir

Menningarhúsið Tjarnarborg

Menningarhúsið Tjarnarborg

Aðventuhátíð í Fjallabyggð.

 

Jólamarkaður, jólagleði, jólasöngvar og jólaskapið verður allsráðandi
1. desember 2013 í og við Menningarhúsið Tjarnarborg frá kl. 13.00 til 17.00

Kvenfélagið Æskan mun vera með vöfflukaffi, einnig munu þær selja sitt víðfræga laufabrauð. Í  jólahúsunum úti, munu vera heitir og kaldir drykkir, hákarl, síld og ásamt fleiru góðgæti


Kveikt verður á jólatrénu kl. 16.00

Þar munu jólasveinar og krakkar frá
Leikskóla Fjallabyggðar syngja til að
fagna ljósum aðventunnar.

 

Skyldi Grýla láta sjá sig,  

Grýla kallar á börnin sín,  - þegar hún fer að sjóða til jóla
Komið þið hingað öll til mín,  - ykkur vil ég bjóða.
Nípa, Típa, Næja, Tæja,  - Nútur, Kútur, Nafar, Tafar,
Láni, Sláni, Leppur, Skreppur,  - Loki, Poki, Leppatuska,
Langleggur og Leiðindaskjóða,  - Völustakkur og Bóla.

 

Kl. 15.00 Dansfélagið Vefarinn og kvæðamannafélagið Ríma, Fjallabyggð

Lady Winter, Slide show
Eftir Bego Antón frá Spáni. Mun hún sýna á suðurvegg Tjarnarborgar kl. 17.00

Söluaðilar vinsamlegast hafið samband við Önnu Maríu í síma 853-8020 eða senda póst., anna@fjallabyggd.is


Athugasemdir

30.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst