Menningarsjóður Sparisjóðs Siglufjarðar - skilafrestur rennur út 11.okt

Menningarsjóður Sparisjóðs Siglufjarðar - skilafrestur rennur út 11.okt Þann 25. febrúar 2003 var Menningarsjóður Sparisjóðs Siglufjarðar stofnaður. 

Fréttir

Menningarsjóður Sparisjóðs Siglufjarðar - skilafrestur rennur út 11.okt

Þann 25. febrúar 2003 var Menningarsjóður Sparisjóðs Siglufjarðar stofnaður.  Stofnframlag var kr. 15.000.000.  Í stjórn sitja Ólafur Jónsson, fulltrúi Sparisjóðs Siglufjarðar, Bogi Sigurbjörnsson, fulltrúi Fjallabyggðar og Guðrún Árnadóttir, fulltrúi Siglufjarðarkirkju.


Stjórn Sparisjóðs Siglufjarðar hefur ákveðið að framlag til Menningarsjóðsins fyrir árið 2010 verði kr. 500.000.

Stjórn Menningarsjóðsins hefur ákveðið að framlag ársins 2010 til menningar- og líknarmála á Siglufirði verði kr. 1.400.000, sem er framlag Sparisjóðsins auk vaxtatekna á árinu 2009.  Eingöngu verða veittir styrkir til menningar- og líknarmála á starfsvæði sjóðsins.

Stjórn Menningarsjóðs Sparisjóðs Siglufjarðar auglýsir hér með eftir styrkbeiðnum frá aðilum tengdum menningar- og líknarstarfsemi.  Nauðsynlegt er að fram komi til hvers styrkurinn er ætlaður.

Frestur til að skila inn skriflegum umsóknum er til og með 11. október 2010.
Umsóknir óskast sendar til:
Menningarsjóðs Sparisjóðs Siglufjarðar
Aðalgötu 34
580 Siglufirði

Nánari upplýsingar veita stjórnarmenn


Stjórn Menningarsjóðs Sparisjóðs Siglufjarðar


Athugasemdir

17.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst