Menntaskólinn á Tröllaskaga

Menntaskólinn á Tröllaskaga Fyrsti vinnufundur kennara og skólastjórnenda Menntaskólans á Tröllaskaga fór fram á Ólafsfirði í dag.

Fréttir

Menntaskólinn á Tröllaskaga

Starfsmenn Menntaskólans á Tröllaskaga.
Starfsmenn Menntaskólans á Tröllaskaga.
Fyrsti vinnufundur kennara og skólastjórnenda Menntaskólans á Tröllaskaga fór fram á Ólafsfirði í dag.


Menntaskólinn á Tröllaskaga er dreifnámsskóli í Ólafsfirði sem mun hefja starf nú í haust.

Skólinn mun starfa eftir nýjum lögum um framhaldsskóla sem gefur aukið svigrúm í námsvali til stúdentsprófs og framhaldsskólaprófs.

Skólinn býður upp á metnaðarfullt nám með fjölbreyttum kennsluháttum sem miða að virkni nemenda og sjálfstæði.

Einkunnarorð skólans eru:  Frumkvæði - Sköpun – Áræði

Kennarar og skólastjórnendur eru:

Bergþór Morthens, Siglufirði - fagurlistir

Harpa Jörundardóttir, Akureyri - enska

Lára Stefánsdóttir, Ólafsfirði - Skólastjóri

Inga Eiríksdóttir, Ólafsfirði - stærðfræði

Jóna Vilhelmína Héðinsdóttir, Ólafsfirði - Aðstoðarskólastjóri,íslenska

Óskar Þórðarson, Siglufirði - lýðheilsa og íþróttir

Valgerður Ósk Einarsdóttir, Akureyri - danska


Athugasemdir

18.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst