Merkilegur áfangi – Fyrsti skóladagurinn

Merkilegur áfangi – Fyrsti skóladagurinn Skólastarf hófst að nýju í Grunnskóla Siglufjarðar í gær eftir sumarleyfi.

Fréttir

Merkilegur áfangi – Fyrsti skóladagurinn

Skólastarf hófst að nýju í Grunnskóla Siglufjarðar í gær eftir sumarleyfi.
Þau voru í essinu sínu krakkarnir í 1. bekk, enda ekki annað hægt þar sem fyrsti skóladagurinn var runninn upp. Alls eru 10 krakkar í fyrsta bekk þetta skólaárið, 6 stelpur og 4 strákar, umsjónakennari þeirra er Sigríður Karlsdóttir. Krakkarnir voru nýkomnir úr myndmennt hjá Kristjáni myndlistarkennara þegar fréttamaður smellti af þeim nokkrum myndum. Tinna færði siglo.is fallega mynd sem hún teiknaði  og við þökkum henni kærlega fyrir myndina.

Partick og Ragnar Óli

Hörður og Bjartmar

Elísabet Alla og Birna

Michele og Jasmín

Arna og Tinna

Tinna með með fallegu myndina sem hún gaf siglo.is

Myndin er komin upp á vegg á skrifstofu siglo.is

Sigríður Karlsdóttir umsjónakennari 1. bekkjar

Athugasemdir

25.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst