Mest myndaða hús á Siglufirði
sksiglo.is | Almennt | 29.06.2010 | 08:00 | Bergþór Morthens | Lestrar 713 | Athugasemdir ( )
Íslenska Sæluhúsið hefur vakið verðskuldaða athygli eftir að það reis við Aðalgötuna á Siglufirði í júníbyrjun 2009. Þúsundþjalasmiðurinn og safnamaðurinn Örlygur Kristfinnsson vinnur nú að því að koma upp girðingu hjá Sæluhúsinu.
Girðingin kemur til með að vera í gömlum stíl með grjóthleðslu inn á milli og á eflaust eftir að setja mikinn svip á umhverfið.
Íslenska sæluhúsið er lítið frístundahús þar sem mið er tekið af íslenskri byggingarhefð 19. aldar. með torfþaki og hlöðnum veggjum úr grjóti eða torfi að framan og aftan.
Sæluhúsið hefur vakið mikla athygli eftir að það reis við Aðalgötuna í júníbyrjun 2009 og hafa hundruðir gesta litið inn og skoðað húsakynnin og fá hús eru jafnmikið mynduð á Siglufirði og þetta - og margir stilla sér upp og láta mynda sig við framhlið þess. Þetta er sennilega mest myndaða hús á Siglufirði.
Húsið hefur er nú búið að vera á þessum stað í eitt ár af þeim fimm sem því var úthlutað í kynningarskyni. Húsið vekur jafnan athygli ferðalanga sem koma í bæinn og setur sterkan svip á Aðalgötuna það verður því fróðlegt að sjá hvað verður um það að fjórum árum liðnum.
Áhugasamir geta fræðst meira um húsið á heimasíðunni http://www.saeluhus.com/

Athugasemdir