Mikið fjör á þrettándabrennu
Það var góð mæting á þrettándabrennuna á Siglufirði í gærkvöld en fjöldi manns mætti þar til að fagna síðasta degi jóla.
Kyndlaganga lagði af stað frá torgi Siglufjarðar klukkan sex í gærkvöld. Í broddi fylkingar var jólasveinninn á toppi slökkvibílsins en gott er að hafa trausta aðila við stjórn á brunaslöngunni. Ásamt jólasveinunum var fjöldinn allur af álfum og huldukonum mættur á staðinn en allir héldu þó til síns heima að fögnuðinum lokknum.
Að lokinni brennu var haldið á Allann þar sem ball var haldið fyrir krakkana. Frekari myndir af ballinu verða birtar á siglo.is síðar í dag.




Fleiri myndir af brennunni má finna HÉR.




Athugasemdir