Minningarsíða um Valdimar Einarsson
Hann var grjótharður stuðningsmaður Liverpool FC og partur af okkar íslenska Liverpoolklúbbi.
Sjúkdómurinn sem hann barðist við var CGD, sem er afar óvenjulegur sjúkdómur í ónæmiskerfinu. Við hvetjum fólk til að skoða þessa miklu baráttusögu hans í gegnum bloggsíðu móður hans. Einkunnarorð okkar Liverpool stuðningsmanna eiga aldrei betur við en einmitt á svona stundum, You'll Never Walk Alone, eða á okkar ástkæra ylhýra, þú gengur aldrei einn Valdimar.
Bloggsíðuna er að finna hérna.
Til að heiðra minningu Valdimars, þá ætlum við að taka Liverpool.is niður á morgun á meðan útför stendur, eða klukkan 14:00.
Hvíl í friði Valdimar.
Athugasemdir