Námskeið um öryggismenningu
sksiglo.is | Almennt | 19.01.2012 | 15:50 | Guðmundur Skarphéðinsson | Lestrar 414 | Athugasemdir ( )
Vinnueftirlitið áætlar að halda námskeið um öryggismenningu og slysaskráningu á Akureyri 25. janúar n.k. Námskeiðsstaður er Skipagata 14, 4. hæð, kl. 09:00-16:00. Verð: 19.000 kr.
Fyrri hlutinn fjallar um orsakir og tíðni vinnuslysa, mikilvægi þess að skrá vinnuslys skipulega og miðlun upplýsinga vegna slysa. Einnig er fjallað um nýtingu slysaupplýsinga til forvarnastarfs. Kynntar verða aðferðir Vinnueftirlitsins við slysarannsóknir. Nemendur gera stutta rannsókn á vinnuslysi.
Síðari hlutinn byggist upp á fyrirlestri og hópverkefnum. Efnið er byggt á sænskri aðferðafræði sem kallast "Byggt á öryggi" en gefin var út bæklingur hjá Vinnueftirlitinu 2009 með sama heiti og finna má hann á eftirfarandi slóð:
http://www.vinnueftirlit.is/vinnueftirlit/upload/files/fraedsluefni/baeklingar/byggt_a_oryggi_net.pdf
Sjá einnig á heimasíðu Vinnueftirlitsins:
http://www.vinnueftirlit.is
Með kveðju
Sigrún Daðadóttir, fulltrúi
Vinnueftirliti ríkisins
Skipagötu 14, 600 Akureyri
Sími: 460-6800
netfang: n-eystra@ver.is

Athugasemdir