Nemendur frá háskólanum á Hólum skoða ferðaþjónustu í Fjallabyggð

Nemendur frá háskólanum á Hólum skoða ferðaþjónustu í Fjallabyggð Ferðamáladeild háskólans að Hólum skoðar nú ferðaþjónustuna í Fjallabyggð en áfanginn

Fréttir

Nemendur frá háskólanum á Hólum skoða ferðaþjónustu í Fjallabyggð

Nemendur frá háskólanum að Hólum
Nemendur frá háskólanum að Hólum
Ferðamáladeild háskólans að Hólum skoðar nú ferðaþjónustuna í Fjallabyggð en áfanginn „Sveitir og Sjávarbyggðir“ sem kenndur er á vorönn felur einmitt í sér greiningu á áfangastöðum á landsbyggðinni.



Tólf nemendur úr háskólanum að Hólum lögðu leið sína í Fjallabyggð í gærdag ásamt kennara sínum Guðrúnu Þóru sem fer fyrir áfanganum. Í áfanganum vinna nemendur í hópum og fékk einn hópurinn það verkefni að greina Fjallabyggð. Á ferð sinni til Siglufjarðar hitti hópurinn fyrir Sigurð Val bæjarstjóra, kíktu í Síldarminjasafnið og kynntu sér starfssemi Rauðku en því næst var haldið á Ólafsfjörð þar sem ferðaþjónustan var skoðuð í þaula en þar fer til að mynda í gang hvalaskoðun næsta sumar.

Margar spurningar brunnu á vörum nemendanna sem voru á öllum aldri og leggja sig greinilega alla fram við námið.

Athugasemdir

16.ágúst 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst