Norðurgata 4
sksiglo.is | Almennt | 10.08.2010 | 12:00 | Bergþór Morthens | Lestrar 720 | Athugasemdir ( )
Húsin á Eyrinni eru mörg hver að ganga í endurnýjun lífdaga. Húsið að Norðurgötu 4 var farið að láta verulega á sjá en er nú að taka stakkaskiptum og verður glæsilegt á að líta þegar verkinu lýkur.
Sigurbjörn eða Bjössi eins og hann er oftast kallaður hefur gert upp nokkur hús hér í bænum með góðum árangri og nú er hann byrjaður á Norðurgötu 4.
Búið er að laga þakið og skipta um glugga í húsinu sem eru haganlega smíðaðir af honum sjálfum.
Hann vinnur nú að því að undirbúa húsið fyrir veturinn og stefnir að því að klára húsið á næsta ári.

Athugasemdir