Norðurlandsmótið í badminton á laugardag

Norðurlandsmótið í badminton á laugardag Norðurlandsmót í Badminton verður haldið í íþróttahúsi Siglufjarðar á morgun, laugardaginn 20.apríl. Áttatíu og

Fréttir

Norðurlandsmótið í badminton á laugardag

Norðurlandsmótið á Akureyri 2012. MJ
Norðurlandsmótið á Akureyri 2012. MJ

Norðurlandsmót í Badminton verður haldið í íþróttahúsi Siglufjarðar á morgun, laugardaginn 20.apríl. Áttatíu og níu keppendur eru skráðir til leiks en keppt er í unglinga- og fullorðinsflokkum.

Unglingaflokkarnir byrja að spila klukkan 10:00 en þar eru fjörutíu og átta keppendur, fullorðinsflokkarnir byrja síðan að spila klukkan 14:00 en þar eru fjörutíu og einn keppandi.

Keppendur koma frá þremur félugum: TBS, TB-KA Akureyri og Semherja frá Hrafnagili.

TBS hvetur alla til að kíkja og sjá spennandi keppni en húsið verður opnað að sunnanverðu fyrir áhorfendur og sjoppa verður á staðnum.

Ljósmyndir fengnar á vef TBS (tbs.123.is), ljósmyndari María Jóhannsdóttir. 

Norðurlandsmótið á Akureyri 2012

Norðurlandsmótið á Akureyri 2012

Norðurlandsmótið á Akureyri 2012

 


Athugasemdir

30.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst