Nú saltar fólk sína síld sjálft
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 15.10.2009 | 10:00 | | Lestrar 811 | Athugasemdir ( )
Það var líf og fjör á Róaldsplaninu í fyrradag er Síldarminjasafnið gaf fólki kost á því að kaupa nýveidda síld og salta til eigin nota. Sumir fengu aðstoð frá síldarstúlkunum góðu en aðrir höfðu engu gleymt og söltuðu sem þau væru á miðri vertíð.
Það má segja að þetta hafi verið enn ein fjöður í hattinn hjá Síldarminjasafninu því margir lögðu leið sína á planið ýmist til að salta eða bara til að fylgjast með.







Það má segja að þetta hafi verið enn ein fjöður í hattinn hjá Síldarminjasafninu því margir lögðu leið sína á planið ýmist til að salta eða bara til að fylgjast með.
Athugasemdir