Nýbygging við Hafnargötu 4
sksiglo.is | Almennt | 02.09.2013 | 06:00 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 1282 | Athugasemdir ( )
Nýbygging við Hafnargötu 4
Ég hitti Vernharð Skarphéðinsson á Hafnargötunni fyrir stuttu
síðan.
Þeir sem þekkja til Venna vita að það er alltaf gaman að hitta hann og
gleðin og bjartsýnin er alltaf í fyrsta sæti hjá honum. Það þarf víst ekki að taka það fram að áhuginn á
smíðum og vinnunni er gríðarlega mikill hjá Venna.
Venni eins og ég kalla hann alltaf var í óða önn að undirbúa
það að steypa grunn(vona að þetta sé rétt hjá mér) fyrir nýja húsið.
Húsið mun standa við Hafnargötu 4 og verður vafalaust fallegt og hvergi kastað
til hendi ef ég þekki Venna rétt. Húsið verður 2. hæða timburhús og áætlar Venni að húsið rísi á
næsta ári ef allt gengur eftir.
Það er alltaf gaman að sjá nýbyggingar rísa á
Sigló. Undanfarin ár hafa nokkur ný íbúðarhús risið á Sigló og vonandi heldur þessi þróun áfram.












Athugasemdir