Nýr upplýsingavefur ferðamanna

Nýr upplýsingavefur ferðamanna Sigló.is hefur nú unnið að því síðastliðnar vikur að setja upp upplýsingasíðu fyrir ferðamenn og aðra áhugasama um

Fréttir

Nýr upplýsingavefur ferðamanna

Ný upplýsingasíða ferðamála
Ný upplýsingasíða ferðamála

Sigló.is hefur nú unnið að því síðastliðnar vikur að setja upp nýja upplýsingasíðu fyrir ferðamenn og aðra áhugasama um Siglufjörð á vefnum. Hvetjum við alla þjónustuaðila í Fjallabyggð og Fljótum til að senda okkur upplýsingar um starfssemi sína.

Vefurinn er uppsettur bæði á Íslensku og ensku og er stefnt að því að íslenski hluti hans innihaldi upplýsingar um alla þjónustu sem í boði er á svæðinu. Erlendur hluti síðunnar mun hinsvegar vera stílaður beint að ferðaþjónustu og verður útlit hans með örlítið öðru sniði en sá íslenski.

Enn á eftir að setja mikið af upplýsingum inn á vefinn og óskar sigló.is eftir því að þeir þjónustuaðilar sem áhuga hafa á að vera sýnilegir aðstoði okkur með því að senda línu á sksiglo@sksiglo.is með upplýsingum um heimilisfang, símanúmer, netfang, vefslóð (ef hún er til) og stutta lýsingu á starfssemi fyrirtækis.

Endilega skoðið síðuna og bendið vinum og vandamönnum á.

Upplýsingasíða ferðamála  Upplýsingasíða ferðamála


Athugasemdir

29.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst