Nýr bátur í norska flotann
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 08.10.2009 | 00:01 | | Lestrar 512 | Athugasemdir ( )
Þessi glæsilegi bátur var sjósettur í gær hjá Siglufjarðar Seig í gær. Þarna er um vandaða smíði í alla staði eins og öllu sem þeir félagar hjá Siglufjarðar Seig eru vanir að skila frá sér.
Ekki hefur þó báturinn verið afhentur væntanlegum eigendum ennþá, en báturinn var smíðaður fyrir norskan aðila.
En Valgeir á Hafnarkránni lét það sig ekki skipta og flaggaði norska fánanum við sjoppu sína í gær í tilefni af sjósetningunni, (það sögðu vegfarendur) en fáninn sést greinilega í bakgrunni, þar sem sá norski lá við Ingvarsbryggjuna á Siglufirði í gærmorgun.
Smá fínstillingar á vélbúnaði og fleiru er eftir eins og gengur, síðan verður báturinn aftur hífaður á land og inn í hús, þar sem hann mun bíða eiganda síns.

Athugasemdir