Nýtt vegrið á hættulegasta kafla Siglufjarðarvegar
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 15.11.2009 | 07:00 | | Lestrar 719 | Athugasemdir ( )
Á fundi bæjarstjórnar Fjallabyggðar 10. nóvember sl. var samþykkt að skora á samgönguráðherra og vegamálastjóra að beita sér fyrir því að sett verði upp vegrið á hættulegasta kafla Siglufjarðarvegar.
Eftirfarandi bókun var samþykkt með 9 atkvæðum.
„Bæjarstjórn Fjallabyggðar tekur undir bókun skipulags- og umhverfisnefndar og skorar á samgönguráðherra og vegamálastjóra að beita sér fyrir því að sett verði upp vegrið á hættulegustu kafla Siglufjarðarvegar nr. 76. Á undanförnum árum hafa orðið alvararleg slys á þessum kafla og á síðasta ári var mesta mildi að ekki varð stórslys þegar bíll fór út af veginum við Kóngsnef, en þar er þverhnípt niður í snjó. Víða eru aðstæður þannig að ef ökutæki fer út af bundnu slitlagi þá er engin fyrirstaða til varnar falli niður í sjó um 100m til 200m. Ljóst er að verulegar bætur eru nauðsynlegar og brýn þörf er á 2,5 km. mislöngum vegriðum á vegakaflanum frá Hraunum og norður í Siglufjörð. Bæjarstjórn Fjallabyggðar lýsir því yfir verulegum áhyggjum af ástandinu og fer þess á leit við Samgönguráðherra og Vegamálastjóra að þeir beiti sér fyrir lagfæringum á svæðinu“.
Sjá nánar á vef Fjallabyggðar

Athugasemdir