Öflugur rekstur skíðasvæðisins tryggður til þriggja ára

Öflugur rekstur skíðasvæðisins tryggður til þriggja ára Egill Rögnvaldsson, framkvæmdastjóri Valló, og Þórir Kristinn Þórisson, bæjarstjóri

Fréttir

Öflugur rekstur skíðasvæðisins tryggður til þriggja ára

Egill og Þórir. Ljósmyndari; Finnur Yngvi Kristinsson
Egill og Þórir. Ljósmyndari; Finnur Yngvi Kristinsson

Egill Rögnvaldsson, framkvæmdastjóri Valló, og Þórir Kristinn Þórisson, bæjarstjóri Fjallabyggðar, skrifuðu síðastliðinn föstudaginn undir samning þess efnis að Valló haldi áfram rekstri skíðasvæðisins og hafi umsjón með knattspyrnuvöllum Fjallabyggðar á Siglufirði næstu þrjú árin.

 

Egill var að vonum mjög ánægður með þennan áfanga enda hefur hann lagt bæði líf og sál í verkefnið á liðnu ári. Nú getur hann hafist handa við að skipuleggja framtíðina með langtíma samningum við samstarfsaðila. Aðspurður hvort einhverra breytinga sé að vænta segir Egill helstu breytinguna þá að í vetur verði lokað á þriðjudögum í stað þess að loka á mánudögum eins og venjan var síðastliðinn vetur. Er þetta gert í þeim tilgangi að lengja helgarnar fyrir þá sem koma langt að til að sækja svæðið.


Síðastliðinn vetur tókst Agli að sexfalda heimsóknir á skíðasvæðið frá fyrri árum og á hann því augljóslega skilið að takast á við verkið á komandi árum. Þetta tókst honum með óbilandi dugnaði og öflugri markaðssetningu. Sigló.is fagnar því þessum tíðindum og telur samninginn vera afar mikilvægt skref í að auka ferðamannastreymi til Siglufjarðar enn frekar.

Valló og Fjallabyggð til hamingju með samninginn.

Heimild: Valló ehf.


Athugasemdir

21.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst