Oft er þörf en nú er nauðsyn - Þjóðfundur á morgun

Oft er þörf en nú er nauðsyn - Þjóðfundur á morgun Á morgun laugardag verður efnt til þjóðfundar í Laugardalshöllinni þar sem glímt verður við hið brýna

Fréttir

Oft er þörf en nú er nauðsyn - Þjóðfundur á morgun

Á morgun laugardag verður efnt til þjóðfundar í Laugardalshöllinni þar sem glímt verður við hið brýna verkefni að taka afstöðu til þess hvernig samfélag við viljum byggja í framtíðinni.
Í gegnum tíðina höfum við íslendingar séð hvers konar grettistaki er hægt að lyfta með samstilltu átaki. Nú þegar Íslenskt þjóðfélag stendur á tímamótum hefur þörfin á samstöðu aldrei verið meiri og nýjar aðstæður kalla á endurmat þeirra grundvallargilda sem samfélagið er reist á og skýrari framtíðarsýn.
Þjóðfundur virkjar sameiginlegt innsæi og vitund almennings sem er hulin hverjum einstaklingi í einrúmi. Þjóðfundurinn er framtak þjóðarinnar sjálfrar og sameign hennar.

Undirbúningur fyrir fundinn stendur sem hæst, en 1.500 manns hafa fengið boð um að mæta. Fulltrúar á fundinum koma úr tveimur áttum, annars vegar úr 1.200 manna slembiúrtaki úr þjóðskrá. Úrtakið er þannig valið að því er ætlað að endurspegla þjóðina. Þar verður því jöfn skipting kynjanna, fólk á öllum aldri og alls staðar af landinu. Hins vegar hefur 300 fulltrúum félaga, samtaka og stofnana verið boðið að senda fulltrúa á fundinn.

Fundurinn verður ekki í anda hefðbundinna pólitískra funda eða borgarafunda. Fundarmönnum verður skipt upp í níu manna hópa og er hópstjóri skipaður á hvert borð, samtals 162 borðstjórar. Borðstjórum er ætlað að hafa samband fyrir fram við alla í sínum hópi. Gengið er út frá því að þeir sem hafa valist til ábyrgðar fyrir hönd þjóðarinnar verði einnig þátttakendur í umræðunni og skuldbindi sig til þess að taka mark á niðurstöðum hennar og fylgja þeim eftir.

Uppfærsla  niðurstaðna (rss feed) verður send reglulega á morgun á fjölmiðla og inn á heimasíðu þjóðfundar


Athugasemdir

24.júní 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst