Múlagöngum (Ólafsfjarðargöngum) lokað vegna grjóthruns
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 09.10.2009 | 10:00 | | Lestrar 460 | Athugasemdir ( )
Múlagöngin (Ólafsfjarðargöngin) lokuðust um ellefuleytið í gærkvöldi þegar grjót féll úr klæðningunni og á veginn. Fjarlægja þurfti eitt vörubílahlass af grjóti áður en göngin voru opnuð aftur í morgun. Litlu mátti muna að slys yrði þegar bifreið var ekið á grjóthrúguna en ökumaðurinn slapp sem betur fer ómeiddur.
Athugasemdir