Ólafsfjarðarvegur ( 82 ), snjóflóðavarnir við Sauðanes
sksiglo.is | Almennt | 15.06.2011 | 08:15 | Guðmundur Skarphéðinsson | Lestrar 308 | Athugasemdir ( )
Opnun tilboða 7. júní 2011. Gerð snjóflóðavarna í Ólafsfjarðarmúla. Um er að ræða gerð þriggja snjóflóðaskápa ofan vegar og uppsetningu á stálþili framan við þá, tveimur 40 m löngum og einu 50 m.
Efnið sem til fellur við gerð skápanna skal nota til breikkunar og jöfnunar vegfláa neðan vegar á um 0,9 km kafla.
Helstu magntölur eru:
| Bergskering (sprengingar) | 8.000 | m3 |
| Fláafleygar, efni úr skeringu | 21.000 | m3 |
| Ræsalögn – lengingar | 6,5 | m |
| Endafrágangur ræsa | 3 | stk. |
| Fylling að stálþili 0-100 mm efni | 470 | m3 |
| Snjóflóðavarnir – stálþil | 130 | m |
| Merking vinnusvæða | 1 | HT |
Verkinu skal að fullu lokið fyrir 1. október 2011.
| Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
| Árni Helgason ehf., Ólafsfirði | 37.505.000 | 101,1 | 8.505 |
| Áætlaður verktakakostnaður | 37.100.000 | 100,0 | 8.100 |
| Hálsafell ehf., Reykjavík | 36.908.000 | 99,5 | 7.908 |
| Urð og Grjót ehf., Reykjavík | 36.750.000 | 99,1 | 7.750 |
| G. Hjálmarsson hf., Akureyri | 29.000.000 | 78,2 | 0 |
Tekið úr fréttablaði Vegagerðar.




Athugasemdir