Óli Tór

Óli Tór Allir þekkja Ólaf Thorarensen, sem ávalt hefur verið kallaður af Siglfirðingum „Óli Tór“ Eins og flestir vita, þá dvelur hann á dvalarheimilinu

Fréttir

Óli Tór

Þórunn, Kristín og Ólöf með afa sínum Ólafi Thorarensen
Þórunn, Kristín og Ólöf með afa sínum Ólafi Thorarensen
Allir þekkja Ólaf Thorarensen, sem ávalt hefur verið kallaður af Siglfirðingum „Óli Tór“ Eins og flestir vita, þá dvelur hann á dvalarheimilinu Skálahlíð á Siglufirði.

Óli er nánast daglega á ferðinni á farskjóta sínum, svo var einnig þegar þessi mynd var tekin af þeim gamla og sonardætrum sínum, Þórunni, Kristínu og Ólöfu, en Ragnar Th, jr. sonur Óla tók myndina sem hér fylgir og sendi okkur, en hann hefur dvalið á Siglufriði undarfana daga ásamt fjölskyldu til að heimsækja þann gamla sem ljómaði talsvert meira en venjulega að því tilefni.

Annars sér maður Óla Tór aldrei öðruvísi en brosandi út að eyrum, svo ánægður er hann yfir því að vera kominn heim til Siglufjarðar eftir langa dvöl erlendis.


Athugasemdir

07.júlí 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst