Öskudagurinn á Sigló
sksiglo.is | Almennt | 11.03.2014 | 06:00 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 400 | Athugasemdir ( )
Það var mikið stuð á krökkunum á Sigló á Öskudaginn.
Alls kyns furðuverur gengu búð úr búð og sungu fyrir nammi.
Þetta er einn af skemmtilegustu dögum ársins, börnin fá að
klæða sig í alls konar búninga, syngja og fá nammi í staðinn og fullorðnir njóta góðs af. Bæði söngnum og
sælgætinu.
Ein skemmtilegasta Öskudags-gjöfin, ef svo mætti segja fannst mér vera
harðfiskur í litlum poka og ég held að það hafi verið frá Sparisjóð Siglfirðinga. Þetta var ágætis mótvægi
við allt sælgætið sem krakkarnir fá. Reyndar gaf einn ungur sveinn mér sinn poka því einfaldlega átti hann nóg af nammi og þurfti
þar af leiðandi bara alls ekki harðfiskinn þó svo að ég hafi þráast við og margspurt hann hvort hann langaði örugglega ekki að eiga
pokann. En allt kom fyrir ekki og harðfiskpokinn var skilinn eftir hjá mér. Sem var alveg ljómandi gott og fiskurinn kláraðist á augabragði.
En margar furðuverur voru á ferli og ég náði að smella myndum af nokkrum þeirra.
Þessar stúlkur sungu mjög vel og ég held að lagið hafi verið frumsamið, allavega textinn.
Jói Mara kom með 2 ninjur með sér.
Leó Óla og Kristín Sigurjóns komu og sungu fyrir mig "Ég er furðuverk".
Lögreglan mætti á svæðið.
Þessi kom aðeins við og tónaði fyrir mig.
Þessar stúlkur voru hressar.
Svo gaf Benni mér harðfiskpokann sem hann fékk og hafði ekki beint þörf fyrir akkúrat þessa stundina því hann átti
nóg nammi.



Athugasemdir