Óvissa um göngu Ferðafálags Siglufjarðar á morgun

Óvissa um göngu Ferðafálags Siglufjarðar á morgun Athugið: Vegna veðursins er óvist að af ferðinni verði !! Í kvöld verður þetta ákveðið og síðan

Fréttir

Óvissa um göngu Ferðafálags Siglufjarðar á morgun

Athugið: Vegna veðursins er óvist að af ferðinni verði !!

Í kvöld verður þetta ákveðið og síðan auglýst á Sksiglo á morgun.

 

Gönguferð á vegum Ferðafélags Siglufjarðar 2009
25. júlí
Skarðsdalur – Hafnarfjall – Hvanneyrarhyrna – Strákar – Engidalur
“ 3 skór”
Mæting á Ráðhústorgi Siglufirði kl. 9 árdegis. Þátttakendum ekið í Skarðsdal. Gangan hefst þar í 300 m. hæð og farið eins og leið liggur norður öll vestanverð fjöll Siglufjarðar, um bungur, eggjar og upp á 4 toppa. Í góðu skyggni er á þessari leið einstakt útsýni yfir Norðurland að Strandafjöllum og Drangajökli í vestri og að Tjörnesi og Melrakkasléttu í austri. Þaðan sjást Drangey og Málmey á Skagafirði ásamt Grímsey í norðaustri og yfir hundrað hyrnur og hnjúka á Tröllaskaga. Gönguleiðin er um 12 km löng og víða eru farnar ,,tæpar götur” í allt að 700 metra hæð. Bílferð í lok ferðar frá Engidal til Siglufjarðar.
Göngumenn hafi með sér góðan göngubúnað og nesti til dagsins.
Þátttökugjald : 3.000 kr. ,félagsmenn F.Í og börn: 1.500kr.
Leiðsögn: Örlygur Kristfinnsson,Einar Ingvi Stefánsson og Mariska van der Meer.
Uppl. Örlygur s.: 8631605 , Mariska 467 1315, mariskavdm@simnet.is


Athugasemdir

21.mars 2026

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst