Páll Óskar bestur ?
sksiglo.is | Almennt | 21.04.2011 | 15:54 | | Lestrar 708 | Athugasemdir ( )
Það má nokkuð öruggt telja að margir í þessum hópi sem hér á myndinni sjást, svara þeirri spurningu játandi. En þarna var verið að hleypa áhangendum hans inn á barnaball sem haldið ver á Allanum í dag klukkan 14:00.
Þarna var nokkuð að gerast sem sennilega er sjaldgæft á Reykjavíkursvæðinu., það er þarna var FRÍTT INN fyrir börn á aldrinum 2-13 ára –
Síðar , klukkan 19:30-22 í kvöld er Palli með unglingaball þar sem aðgangur er seldur.
Daginn áður lét Páll í sér heyra svo um munaði við mikinn fögnuð að vanda.
Fullyrt hefur verið af mörgum að enginn vafi leiki á að Páll Óskar sé langvinsælasti íslenski popparinn sem troðið hefur uppi á Siglufirði, enda hefur hann nokkuð oft gefið sér tíma til að heimsækja staðinn.
Til gamans má geta hvað varðar FRÍTT INN á skírdag, að í marga áratugi var sú hefð í þessu húsi; Nýja Bíó á Siglufirði, að kvikmyndasýningar á þessum degi voru ætíð ókeypis fyrir börn, bæði í þá tíð er Oddur og Guðrún áttu og ráku Nýja Bíó, sem og þegar Steingrímur og fjölskylda áttu og ráku bíóið.

Athugasemdir