Píluklúbbur Siglufjarðar
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 05.10.2009 | 07:00 | | Lestrar 769 | Athugasemdir ( )
Félagar í klúbbnum hittast alla jafna einu sinni í mánuði á heimili Sigrúnar Ingólfs en sem stendur hefur klúbburinn ekkert húsnæði eftir að gamla Allanum var lokað. Allastjórinn Lóa hefur lofað betrumbótum en það vantar smið í hópinn svo hægt sé að útbúa aðstöðu í Allanum því fjárstaða klúbbsins er ekki sterkt.
Þegar að best lét voru 14 félagar í Píluklúbb Siglufjarðar en heldur hefur dalað eftir að þau misstu aðstöðuna. Þess má geta að þau Arna Rut Gunnlaugs og Haraldur Pálsson náðu því að verða landsliðsmenn í íþróttinni. Keppt var á laugardaginn í norðandeild kvenna á heimili Sigrúnar sem er liður í því að komast í landsliðssæti hjá Íslenska Pílukastsfélaginu. Það er því mjög mikilvægt að klúbburinn komist sem fyrst í viðunandi húsnæði svo við eignumst fleiri landsliðsmenn.
Hver veit nema einhver þessar kvenna komist í landsliðið.
Sigrún

Lóa

Hulda

Ólöf Gréta

Athugasemdir