Rauðka flytur aðsetur sitt að Suðurgötu 10
Eins og bæjarbúum er nú mörgum orðið kunnugt hefur Rauðka unnið að flutningi frumkvöðlasetursins þar sem Rauðka, SKSigló, Valló og Þjóðlagasetrið hafa aðstöðu.
Fyrirtækið hefur um stund haft hug á að flytja aðsetur sitt að Suðurgötu 10, þar sem Verkalýðsfélagið Vaka var áður til húsa. Hefur Rauðka nú tekið húsnæðið á leigu hjá Sparisjóð Siglufjarðar og formlega flutt aðsetur sitt þangað.
Rauðka er nú komin á mun betri stað í hjarta bæjarins þaðan sem öll yfirsýn yfir framkvæmdir og starfssemi fyrirtækisins er mun betri. Bæði Egill hjá Valló og Rúna hjá Þjóðlagasetrinu flytja starfssemi sína með Rauðku enda hafa þessir aðilar allir átt mjög góða samvinnu í gegnum tíðina og verður nú stuðlað að henni enn frekar. SKSigló hefur einnig flutt sína starfssemi að Suðurgötu 10.
Dyr Rauðku verða að sjálfsögðu ennþá opnar fyrir gestum og gangandi og er bæjarbúum og ferðalöngum því frjálst að kíkja í heimsókn hvenær sem er.
Athugasemdir