Reitir skapandi verkefni
sksiglo.is | Almennt | 19.07.2012 | 20:00 | Guðmundur Skarphéðinsson | Lestrar 697 | Athugasemdir ( )
Markmið Reita er að móta varanlegan grundvöll á Siglufirði fyrir
skapandi fólk til sköpunar og samvinnu í spennandi umhverfi, með
samfélagsmynd og sögu bæjarins að leiðarljósi.
17 erlendir og 10 íslenskir þátttakendur leggja leið sína til Siglufjarðar á vegum verkefnisins. Hópurinn samanstendur annars vegar af atvinnumönnum í listum og faglærðum hönnuðum og hins vegar sérfræðingum í raungreinum.
Mikil áhersla er lögð á fjölbreytni starfsgreina innan hópsins og þátttakendur eru hvattir til að fara nýjar leiðir og vera opnir fyrir breytingum á vinnuháttum. Þátttakendur Reita hafa frelsi til að vinna hvers kyns verkefni, til dæmis í formi skúlptúra, gjörninga, myndverka eða textavinnu.
Útkoma eða stefna verkefnisins mun ekki skýrast fyrr en verkefnið er byrjað. Þátttaka bæjarbúa getur orðið margvísleg, en fyrst og fremst eru bæjarbúar hvattir til að fylgjast með hópnum sem vinnur útfrá Alþýðuhúsinu, á vefsetri verkefnisins, www.reitir.com, eða á http://facebook.com/reitir .
Aðalstyrktaraðilar eru Menningarráð Eyþings og Aðþýðuhúsið, einnig er verkefnið styrkt af Fiskbúð Siglufjarðar, Aðalbakaríinu, Billanum og Fjallabyggð
Texti: Aðsendur
Mynd: GJS

Athugasemdir